Samtök kvenna af erlendum uppruna stóðu fyrir bóngó-kvöldum sl. vetur og verður nú þráðurinn tekinn upp að nýju. Fimmtudaginn 30. október nk. verður blásið til bóngókvölds í Alþjóðahúsinu sem nú er flutt á Laugaveg 37, (ath. inngangur bak við húsið á jarðhæð). Markmið þessara kvölda er að byggja brú á milli kvenna, íslenskra og erlendra, og eiga ánægjulegt kvöld saman. Hvert bingóspjald kostar 100 krónur. Veitingar og spennandi og spennandi vinningar.