#freethenipple

[youtube height=“360″ width=“640″]http://www.youtube.com/watch?v=Ez75Ws4EgAM[/youtube]

 

Það er ekki hægt að panta byltingu, hvorki hvenær hún gerist né hvernig. Byltingar eru í eðli sínu sjálfsprottnar, á bak við þær fólk sem tekur höndum saman og krefst þess að samfélagið breytist.

Kvenréttindafélag Íslands er sprottið upp úr einni þvílíkri byltingu, þegar konur risu á fætur og kröfðust þess að fá fullt aðgengi að stofnunum samfélagsins, að fá sjálfan kosningaréttinn. Og nú, rúmlega 100 árum síðar, sitjum við á kantinum og blásum eins fast og við getum í hvatningalúðrana, og hvetjum áfram byltingahetjurnar, feminískar konur í menntaskólum, háskólum og jafnvel grunnskólum landsins.

Þessar konur lifa og hrærast í heimi sem formæður þeirra ættu erfitt með að ímynda sér, í stafrænum heimi veraldarvefsins. En ógnirnar sem þær takast á við eru þó gamalkunnugar og rótgrónar. Konur á veraldarvefnum þurfa að takast á við áreitni, við hótanir, við ofsóknir, við kynferðislegt ofbeldi.

Ein birtingarmynd þessa ofbeldis er svokallað hrelliklám, þegar ljósmyndum sem sýna einstaklinga nakta og/eða á kynferðislegan máta er dreift án samþykkis þess sem á myndinni er. Í samfélaginu í dag, líkt og fyrir hundrað árum, ganga líkamar kvenna kaupum og sölum. Við búum enn í samfélagi þar sem konur eru markaðsvörur.

Sú bylting sem #freethenipple konurnar standa á bak við er skref í átt að auknu kynfrelsi, skref í átt þess að við konur tökum yfirráðarétt yfir okkar eigin líkömum og neitum þeim sem vilja eigna sér þá, neitum því að í nekt kvenna sé falin skömm. Samtakamáttur íslenskra kvenna hefur gjörbreytt íslensku samfélagi síðustu hundrað árin, og skapað okkur betri heim. Enn og aftur standa konur saman, nú á veraldarvefnum, og krefjast þess að samfélagið virði yfirráðarétt kvenna yfir eigin lífi og líkama, að skömmin sem konur hafa dröslast með í gegnum aldirnar sé færð á sinn rétta stað, í faðm þeirra sem vilja eigna sér og misnota líkama annarra.

Þær konur sem hafa hafa tekið þátt í #freethenipple hreyfingunni munu finna fyrir ógnarkrafti feðraveldisins sem þær berjast á móti. Við því vill stjórn Kvenréttindafélagsins segja: Ef þið finnið fyrir mótlætinu, þá getið verið fullvissar um að þið séuð að gera eitthvað rétt. Við berum í (kappklæddum) brjóstum okkar fullan stuðning við aðgerðir ykkar og hlökkum til að takast á við feðraveldið í nýrri mynd.

 

Hallveigarstöðum, Reykjavík
27. mars 2015