Evrópuráðstefna kvennasamtakanna BPW (European Business and Professional Women), verður haldin helgina 27.-29. maí nk. Ráðstefnan er haldin á þriggja ára fresti og verður nú í annað sinn hérlendis, en 1997 mættu um 400 konur víðs vegar að úr heiminum. Ráðstefnan verður haldin í Hilton Reykjavík Nordica undir slagorðinu „Jafnrétti“ og er skráning á ráðstefnuna enn opin.
Rut Einarsdóttir, framkvæmdastýra Kvenréttindafélags Íslands heldur vinnusmiðju á „Young BPW Symposium“ laugardaginn 28. maí, þar sem hún fer yfir sögu, markmið og verkefni Kvenréttindafélagsins, ásamt því að fara yfir stöðu jafnréttis á Íslandi.
Tatjana Latinovic, formaður Kvenréttindafélagsins fer með erindi á pallborði um framtíð jafnréttis sunnudaginn 29. maí, þar sem hún mun ræða mikilvægi þess að allir fái sæti við borðið og Joanna Marcinkowska, stjórnarkona Kvenréttindafélagsins verður með erindi á pallborði um jafnrétti í framkvæmd, þar sem hún talar um valdeflinu kvenna, frá Póllandi til Íslands.
Samtökin BPW voru stofnuð í Bandaríkjunum 1919 til að koma á tengslaneti kvenna á vinnumarkaði og skapa samstöðu þeirra á milli. Alþjóðasamtökin IFBPW (International Federation of Business and Professional Women) voru stofnuð 1930 og ná nú til tæplega 100 ríkja í fimm heimsálfum. Þau vinna að mörgum heimsmarkmiðum SÞ og hafa auk þess verið í samstarfi við UN Women. „Jafnrétti kynjanna, menntun fyrir alla og jöfnuður almennt hafa verið aðalmarkmið samtakanna í áratugi ásamt því að styrkja konur til starfa og hvetja þær til frumkvæðis og forystu,“ sagði Jóhanna Kristín Tómasdóttir, forseti BPW klúbbsins í Reykjavík í viðtali við mbl. Hún bendir jafnframt á að samtökin hafi víða unnið að heilsueflingu síðan kórónuveirufaraldurinn skall á.