Einar Benediktsson (1864–1940) barðist fyrir fullveldi íslensku þjóðarinnar.
Hann hannaði Hvítbláin, íslenska fánann sem aldrei varð, og kveikti sjálfstæðisanda með ljóðum sínum.
Rís þú, unga Íslands merki,
upp með þúsund radda brag.
Tengdu í oss að einu verki
anda, kraft og hjartalag.
Lesa meira:
- „Einar Benediktsson skáld“ í Tímariti Máls og menningar, 1940. Jónas Þorbergsson.
- „Einar Benediktsson, skáldið og þjóðin“ í Rétti, 1933. Kristinn E. Andrésson.
- „Einar Benediktsson – Í fararbroddi frelsisbaráttu og tröllaukinna framkvæmda“ í Lesbók Morgunblaðsins, 8. nóvember 1968. Sveinn Benediktsson.
- Einar Benediktsson á vefnum Lestu.is.
- Merkir Íslendingar – Einar Benediktsson á Þingeyrarvefnum.