Fimmtudaginn 31. janúar kl. 12:00 verður haldinn fyrirlestur á vegum RIKK í sal 4 í Háskólabíó. Það er Alison J. K. Bailes, gestakennari við stjórnmálafræði HÍ, sem flytur erindi um konur og nýjar áherslur í öryggismálum. Erindið verður flutt á ensku og heitir: New Dimensions of Security – are they good for women and are women good for them?
Fyrirlesturinn er öllum opinn.