Jafnréttisráð lýsir eftir tilnefningum til jafnréttisviðurkenningar fyrir árið 2008. Viðurkenningu geta hlotið fyrirtæki, stofnanir, sveitarfélög, hópar eða félagasamtök sem á einn eða annan hátt hafa skarað fram úr eða markað spor á sviði jafnréttismála. Tilgangurinn er að verðlauna fyrir vel unnin störf í þágu jafnréttis kvenna og karla og hvetja um leið til frekari dáða.
Tilnefningum skal skilað eigi síðar en 14. september n.k. til Jafnréttisráðs, Borgum, 600 Akureyri, í síma 460 6200, bréfsíma 460 6201 eða í tölvupósti jafnretti[at]jafnretti.is