Kvenréttindafélag Íslands ítrekar áskorun sína til þeirra alþingismanna sem fá það verkefni að mynda nýja ríkisstjórn að tryggja að jöfn kynjahlutföll séu á ráðherrastólum.

Kvenréttindafélagið hvetur enn fremur alla flokka á Alþingi að gæta þess að tilnefna konur og karla til jafns í nefndir og ráð og að tryggja jöfn kynjahlutföll í opinberum nefndum og ráðum.

Kynjajafnrétti er grundvöllur hagsældar og velferðar og án valdeflingar og þátttöku kvenna á opinberum vettvangi er ekki hægt að uppfylla markmið Sameinuðu þjóðanna um frið, jafnrétti og lýðræði.

Hallveigarstaðir, 9. janúar 2017

One Comment

  1. […] við skipan ríkisstjórnar og við skipan í nefndir og ráð, nánar tiltekið fjórum sinnum á síðastliðnu ári, síðast 14. nóvember síðastliðinn. Að mati Kvenréttindafélagsins […]

Comments are closed.

Aðrar fréttir