Kvenréttindafélag Íslands ítrekar áskorun sína til alþingismanna sem fá það verkefni að mynda nýja ríkisstjórn að tryggja að jöfn kynjahlutföll séu á ráðherrastólum og að jafnréttismál verði sett í forgang við myndun nýrrar ríkisstjórnar.
Kvenréttindafélagið hvetur ennfremur þingflokka Alþingis til að hafa jafnréttissjónarmið ávallt í huga í starfi sínu á komandi Alþingi, að gæta þess að tilnefna konur og karla til jafns í þingnefndir og tryggja jöfn kynjahlutföll í opinberum nefndum og ráðum.
Kvenréttindafélagið skorar á fulltrúa flokkanna sem taka þátt í stjórnarmyndun, sem og þingheim allan, að hafa mannréttindi að leiðarljósi og sýna í verki að ekkert umburðarlyndi ríkir fyrir kynbundnu ofbeldi eða samtryggingu sem nær einungis yfir útvalda. Umræða um ástæðu þess að síðasta ríkisstjórn féll má ekki einungis hvíla á herðum þolenda, hana ber að taka á æðstu stöðum samfélagsins.
Þetta er nú í fjórða skipti á tæpu ári sem Kvenréttindafélagið hefur þurft að senda frá sér hvatningu til stjórnmálaflokka að tryggja kynjajafnrétti í stjórnarmyndun. Við bindum vonir við að mynduð verði sterk ríkisstjórn sem hefur jafnrétti kynjanna að leiðarljósi í öllu starfi og stefnumótun. Kynjajafnrétti er grundvöllur hagsældar og velferðar og án valdeflingar og þátttöku kvenna á opinberum vettvangi er ekki hægt að uppfylla markmið Sameinuðu þjóðanna um frið, jafnrétti og lýðræði.
Hallveigarstaðir, 14. nóvember 2017
One Comment
Comments are closed.
[…] og við skipan í nefndir og ráð, nánar tiltekið fjórum sinnum á síðastliðnu ári, síðast 14. nóvember síðastliðinn. Að mati Kvenréttindafélagsins hefur Alþingi nú sýnt […]