Kvenréttindafélag Íslands, Mannréttindaskrifstofa Íslands, Samtök um kvennaathvarf og Stígamót hafa í sameiningu skilað viðbótarskýrslu við skýrslu stjórnvalda um framkvæmd Istanbúlssamningsins, samning Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi gagnvart konum og heimilisofbeldi.

Istanbúlsamningurinn var samþykktur á vettvangi Evrópuráðsins 11. maí 2011 og undirritaður af íslenskum stjórnvöldum sama dag. Samningurinn var loks fullgiltur þann 26. apríl 2018. Á grundvelli samningsins skila stjórnvöld inn skýrslum um framkvæmd Istanbúlsamningsins hér á Íslandi og var þeirri skýrslu skilað inn í september á þesu ári (lesið skýrslu stjórnvalda hér).

GREVIO nefnd Evrópuráðsins (Group of Experts on Action against Violence against Women and Domestic Violence) hefur það hlutverk að meta framkvæmd stjórnvalda á forvörnum og baráttu gegn ofbeldi gagnvart konum og heimilisofbeldi á Íslandi. Til að aðstoða við þá vinnu hafa Kvenréttindafélag Íslands, Mannréttindaskrifstofa Íslands, Samtök um kvennaathvarf og Stígamót sent til GREVIO viðbót við skýrslu stjórnvalda.

Lesið viðbótarskýrslu Kvenréttindafélagsins, Kvennaathvarfsins, Mannréttindaskrifstofu og Stígamóta hér.