Í tilefni af 100 ári afmæli félagsins opnar KRFÍ sögusýningu í samkomusal Hallveigarstaða við Túngötu, miðvikudaginn 5. desember kl. 16:00. Dagskrá á opnunarhátíð er eftirfarandi:
- 16:00 Ávarp formanns KRFÍ Þorbjargar I. Jónsdóttur
- 16:10 Auður Styrkársdóttir forstöðukona Kvennasögusafns Íslands flytur erindi um sögu KRFÍ
- 16:20 Margrét Sverrisdóttir varaformaður KRFÍ les ljóð
- 16:30 Kvartettinn Dísurnar flytja tónlist eftir konur.
Veitingar. Allir velkomnir.
Sýningin verður opin alla daga nema mánudaga og þriðjudaga, frá kl. 14:00-18:00 fram að jólum. Lokað yfir hátíðarnar en opnar aftur 3. janúar 2008. Þjóðhátíðarsjóður og Ríkissjónvarpið styrktu KRFÍ í uppsetningu sýningarinnar.