Kvenréttindafélagið hvetur íslensk stjórnvöld að grípa til aðgerða vegna ákvörðunar Tyrklands að segja sig frá Istanbúlsamningnum

Kvenréttindafélag Íslands hefur sent bréf til Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra og Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra þar sem íslensk stjórnvöld eru hvött til að grípa til aðgerða í kjölfar ákvörðunar Tyrklands að segja sig frá Istanbúlsamningnum svokallaða, samningi Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi gagnvart konum og heimilisofbeldi.

Istanbúlsamningurinn er fyrsti alþjóðlegi sáttmálinn sem tekur heildstætt á ofbeldi gagnvart konum og heimilisofbeldi og er mikilvægt verkfæri á alþjóðavettvangi í jafnréttisbaráttunni. Sú ákvörðun Tyrklands að segja sig úr samningnum er því mikið bakslag og veikir alþjóðlegt starf gegn ofbeldi.

Kvenréttindafélag Íslands hvetur íslensk stjórnvöld til að grípa til eftirfarandi aðgerða:

  • Að hvetja tyrknesk stjórnvöld til að draga til baka ákvörðun sína um að segja sig frá Istanbúlsamningnum
  • Að hvetja öll aðildarríki Evrópuráðsins og ríki sem undirritað hafa Istanbúlsamninginn að beita öllum lagalegum og pólitískum ráðum til að koma í veg fyrir að Tyrkland geti sagt sig frá Istanbúlsamningnum.
  • Að hvetja öll aðildarríki Evrópuráðsins til að fullgilda Istanbúlsamninginn tafarlaust og skilyrðislaust.

Tilkynningar um heimilisofbeldi og ofbeldi gegn konum hafa aukist á tímum alheimsfaraldursins COVID-19, og er Ísland þar engin undantekning. Allar konur og stúlkur eiga það skilið að lifa lífi sínu frjálsar frá ofbeldi; það er nauðsynlegt að grípa til aðgerða strax!