Stjórn Kvenréttindafélags Íslands tekur heilshugar undir hugmyndir Ástu R. Jóhannesdóttur, félags- og tryggingamálaráðherra, um að stjórnmálaflokkarnir setji sér reglur er varða kynjaskiptingu á framboðslistum, þannig að skipting kvenna og karla verði sem jöfnust. Eins og félags- og tryggingamálaráðherra bendir réttilega á, er það hlutverk flokkanna að tryggja konum og körlum jafna hlutdeild í lýðræðislega kjörnum stofnunum samfélagsins.

 

Einnig er vakin athygli á því að í síðustu alþingiskosningum, sem fram fóru árið 2007, fækkaði alþingiskonum miðað við þar síðustu kosningar á árinu 2003. Hlutfall kvenframbjóðenda var að auki mun hærra en þeirra sem náðu kjöri  í síðustu kosningum. Það bendir til þess að konur skipa síður efstu sæti á framboðslistum stjórnmálaflokkanna sem líklegust eru til þingmennsku.

Stjórn Kvenréttindafélags Íslands telur að tryggja verði aðkomu kvenna jafnt og karla í örugg sæti framboðslistanna. Tilmæli félags- og tryggingamálaráðherra til stjórnmálaflokkanna eru því tímabær og sanngjörn og í fullu samræmi við núverandi janfréttislög.

 

Hallveigarstöðum, 19. febrúar 2009