Kvenréttindafélag Íslands stóð fyrir rafrænum fundi um kjarajafnrétti og leiðréttingu á kjörum kvennastétta, fimmtudaginn 17. mars á NGO-CSW 66, í samstarfi við Kvinderådet í Danmörku og NYTKIS í Finnlandi.
Astrid Elkjær Sørensen sagnfræðingur í kynja- og vinnumarkaðssögu, Fatim Diarra formaður NYTKIS og Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB voru með framsögu. Tatjana Latinovic formaður Kvenréttindafélagsins og Lise Johansen framkvæmdastýra Kvinderådet tóku þátt í umræðum. Johanna Kantola, prófessor í kynjafræði við háskólann í Tampere, stýrði umræðum.
Upptöku af fundinum er hægt að sjá hér fyrir ofan. Glærur sem fylgdu erindum Astrid, Fatim og Sonju er hér fyrir neðan.
- Astrid Elkjær Sørensen: #NordicFeminisms: Pay Equity in Denmark
- Fatim Diarra: Nordic Feminisms, Pay Equity in Finland: Time Use Survey, unpaid labor and care work
- Sonja Ýr Þorbergsdóttir: The Value of Women’s Work
Á fundinum tóku þátttakendur saman femínískan to-do lista til að koma á kjarajafnrétti: