Norræn ráðstefna KRFÍ um ný sóknarfæri í jafnréttismálum verður haldin á Grand Hótel í Reykjavík, laugardaginn 26. september nk. kl. 10.00-17.00

Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra ávarpar ráðstefnuna en aðrir frummælendur verða:

* Tryggvi Hallgrímsson, sérfræðingur hjá Janfréttisstofu
* Sigríður Snævarr, sendiherra
* Gyða Margrét Pétursdóttir, doktorsnemi í kynjafræði við HÍ
* Kristín Pétursdóttir, forstjóri Auðar Capital
* Carita Peltonen, sérfræðingur í jafnréttismálum

Pallborðsumræður, hádegisverður og vinnuhópar*

*Hópur 1 (á skandinavísku): „Kreppan gefur körlum séns“: Þátttaka verkalýðsfélaganna – leiðir til aukins kynjajafnréttis. Stjórnandi Maríanna Traustadóttir, jafnréttisfulltrúi ASÍ.

*Hópur 2 (á ensku): Hugmyndasmiðja: Hvernig nýtum við okkur kreppuna til aukins jafnréttis kynjanna? Stjórnandi Silja Bára Ómarsdóttir, aðjúnkt við stjórnmálafræðideild HÍ

Fundarstjóri: Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta

Ráðstefnan fer fram á skandinavísku og ensku. Allir velkomnir. Þátttökugjald kr. 1.000 (innifalinn er hádegisverður, kaffi og drykkur í móttöku KRFÍ að lokinni dagsrká).

MUNIÐ SKRÁNINGU Á krfi [hjá] krfi.is