Kvenréttindafélag Íslands hvetur konur til að sækja um stöðu Seðlabankastjóra

SeðlabankiFjármála- og efnahagsráðuneytið hefur auglýst embætti bankastjóra Seðlabanka Íslands laust til umsóknar. Frá stofnun bankans hafa eingöngu karlar gegnt stöðu bankastjóra.

Í auglýsingu eru konur jafnt sem karlar hvött til að sækja um starfið.

Kvenréttindafélagið hvetur konur eindregið til að sækja um starf Seðlabankastjóra.

Upplýsingar um starfið, ráðningaferlið og kröfur til umsækjanda má finna á Starfatorgi og er umsóknarfrestur til 27. júní 2014.